Færsluflokkur: Bloggar
30.10.2007 | 21:21
Okey!
Góða kvöldið, lítið hefur nú drifið hjá mér undafarna daga nema vinna og aftur vinna, ekki er það svo slæmt því jú maður þarfnast peninga meira enn allt annað....Litla systir mín er nú búin að kaupa sér sinn fyrsta bíl og varð VW Golf fyrir valinu, flottur bíl og vel með farinn, allt gott og blessað með það. Eins og flestir landsmenn vita var tilboðsdagar Toyotu að ljúka og seldust rúmir 300 bíla á þessum fjórum dögum sem þykir mjög gott og auðvita viti þið hver á heiðurinn á þessari sölutölu því jú allir þessir bíla voru þrifnir hjá MÉR!!!!!! Já eitt annað hef ekki smakkað það í 3 vikur og er það persónulegt met hjá mér, kannski er bara kominn tími til að skrúfa allveg fyrir kranann!! Og svona í lokinn langar mér að koma með vísu sem Siggi gamli er vanur að raula......
Gamla manninn dreymdi draum, dreymdi að hann væri að ríða. Brundur rann í stríðum straum, inn í kunntu víða. Vaknaði karl við voða sköll, veinaði,grét og stundi. Annari hendi hélt um böll en hin var full af brundi. Það skeði þannig skyldist mér, hann skorti kvennahylli. Hann hafði riðið sjálfum sér, svefns og vöku milli.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 20:05
Jæja!!
Vitiði hvað er erfitt að kaupa sér íbúð í dag? Ég er núna að selja helvítis Subaróinn og er sterklega að spá í að komast burt úr foreldrahúsum enn maður þarf að eiga allavega 2-3 millur í útborgun í íbúð til þess að sleppa við að borga morðfjár í afborganir á mánuði! Það væri kraftaverk ef ég myndi ná að safna milljón, ég eyði svo mikið og svo er líka ekki mikið úrval af íbúðum á markaðinum í dag. Ætli maður endi ekki á því að leigja bara einhverja kompu niðrí bæ, þó að maður sé nú ekkert sérlega spenntur fyrir því. Svo er maður líka svo mikil félagsvera að ég mun mjög líklega hundleiðast einn í einhverjari íbúð því ekki hef ég enn hitt draumadísina í lífi mínu enn vona að hún komi fljótt í leitina svo maður nenni að flytja og byrja sitt eigið líf......Shit hvað mig langar í bjór núna.......
Takk fyrir mig
Skúrkurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.9.2007 | 16:12
Subaru Impreza GT?
Jæja eins og flestir vita er kallinn kominn á enn nýjann bíl og varð Subaru Impreza GT fyrir valinu. Ef þetta vöru ekki verstu kaup ævi minnar fyrir utan helvítis dauðabílinn fræga veit ég ekki hvað!! Bíllinn mokk eyðir um 2o-25 lítrum á hundraði og þarf maður alltaf að kaupa á hann 98 okt sem er djöfull dýrt. Ég er búin að eiga bílinn núna í um 2 mánuði og bara núna um daginn fór í bílnum abs talvan og svona talva kostar skal ég seigja um litlar 350 þúsund krónur!!!!!!!!!! Liggur við jafn mikið og ég borgaði út í bílnum. Svo er ekki öll sagan sögð enn það þarf að skipta um allar hjólalegur í honum og endurnýja bremsukerfið......útgjöld, útgjöld, útgjöld......Eftir allt sem ég er búin að lenda í með þennann bíl vil ég bara seigja fólki að kaupa sér ALDREI NOKKURN TÍMANN Subaru því að þessir bílar eru helvítis andskotans drasl og Toyota er lang best hehehe.........og ef þvið viljið ódrepandi bíla kaupið þið Daihatsu Charade enn það er ein leið til að rústa þannig bíl er að hleypa feitri sænskri hermellu með þér á rúntinn hehehehehehe (smá skot á Árna)
Takk fyrir mig
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.8.2007 | 20:37
Vinnan mín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)